Hvað er að gerast í veðrinu

Hvernig er þetta orðið með þetta veður, fyrir 1-2 árum snjóaði man ég einhverstaðar á Spáni þar sem aldrei hafði snjóað áður. Hér hefur verið minni og minni snjór, vetur eftir vetur nema síðasta vetur þá var mjög mikill snjór allavega hér á suðurhálendinu en þá hafði enginn efni á að ferðast að ráði. Ég fór með Spánverja á Langjökul fyrir nokkrum árum sem aldrei höfðu séð snjó og það var ólýsanleg reynsla að verða vitni af því.

Kveðja Lella


mbl.is Snjór í Kenýa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið

með gamla fólkið og smygl í Norrænu. En reyndar er þetta hópurinn sem flýtur í geng um tollin með dópið. Allavega flott hjá löggunni að ná honum.

Kveðja Lella


mbl.is Gæsluvarðhald vegna fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á hverju eru blaðamenn ?

Hef oft velt fyrir mér á blaðamenn eru stundum ....... orðalagið sem þeir eiga til að nota. Gripdeild varð hjá N1  í Kópavogi þegar maður náði í nokkra seðla....... skilur þetta einhver? segir maður ekki bara þjófnaður varð ? Gripdeild virkar á mig sem rosalega margir eigi hlut að máli.

en kannski er ég bara svona treg.

Kveðja Lella


mbl.is Gripdeild í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtin aðferð

Mér finnst þetta skýtin aðferð við að bjóða nemendur velkomna í skólann. Fannst líka athyglisvert að hvorki busar eða þeir sem að þessu stóðu vissu tilganginn. Ég fór fyrir nokkrum árum í MK á gamals aldri og varð vitni af busavíxlum 2 sinnum og mér fannst þetta niðurlægandi og óþarft og dauðvorkenndi krökkunum. Þó að kennarar gengu um og tóku þá sem buguðust afsíðis þá skal enginn segja mér að þeir hafi ekki fengið að heyra það eftir á.....

Allavega sé ég ekki tilganginn með þessu


mbl.is Varað við busavígslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær ekkert að vera í friði í dag ?

Fengum skemmtilega heimsókn fyrir 3 vikum síðan, það gleymdist að læsa hurð og einhver háleystur ranglaði inn, garðurinn hafði verið sleginn kvöldið áður og líka hjá nágrannanum og ekki rakað mjög vel, allavega skildi júllinn slóðina af grasi eftir sig um allt. Ekki var hann að leita að verðmætum lét allt slíkt vera. Heldur fór hann í barskápinn tók 7 flöskur, flestar hálf tómar, hann tók þær sem voru fremst. Þorgeir var voða glaður að 4 lítrarnir af Rommi sem stóðu aftast í skápnum voru ekki snertar. Svo fór hann í ísskápinn og tók 1 stk Thule sem þar var.

Mér fannst leppalúðinn reyndar ekki eiga Thule skilið.

2 vikum seinna fæ ég svo símtal frá Securitas þar sem þeir eru að bjóða öryggiskerfi, getið rétt ímyndað ykkur hvað það þurfti lítið til að sannfæra mig um ágæti svona kerfis.

Þeim fannst það reyndar ekki fyndið þegar við spurðum hvort þeir hefði sent mannin um nóttina.

Verst fannst mér að vita af einhverjum ranglandi um maður bara grjót svaf.

Ferðaklúbburinn 4x4 er með fjallaskála á miðju hálendi Íslands, sunnan af Hofsjökli, það er ekki eins og þetta sé í alfaraleið. Um síðustu helgi fór hópur í skálann í vinnuferð en þegar að var komið var búið að brjótast inn í hann, brjóta og skemma ýmislegt, það var grillað inni í húsinu og þegar lúðarnir voru búnir að borða grýttu þeir diskunum í næsta vegg og brutu þá með matarleyfunum á.

Er í lagi með svona fólk ?

Ef einhver veit um einhverja á ferðinn á þessum slóðum á fimmtudeg til föstudags, láta lögguna á Selfossi vita.

52430

sóðaskapur og búðið að brenna borðhornið

 52433

klósetthurðin brotin upp

52435

skildu eftir skít í klósettinu

52437

og rusl og drast úti.

Stal þessum myndum frá Magga í Skálanefnd :-)

Halló þetta er Setrið ............

Kveðja Lella


Er þetta djók

Hvaða rugl er þetta, fær ekkert að vera í friði í dag.

en hættiðði nú alveg Ófeigsfjörður er á hjara veraldar, þangað er ekki bílvegur, aðeins jeppaslóði og má hann ekki bara vera í friði ? Eða verður þangað lagður malbikaður vegur.

Ætli Pétur sé bara kampakátur með þetta.........

Dem Lella 

 

 


mbl.is Vill virkjun í Ófeigsfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yheeee

Loksins hafði ég það af að búa til blogg, maður er víst ekki maður með mönnum nema að blogga. Annars finnst mér þessi bloggheimur svolítið svona eins og var sýnt í áramótaskaupinu, fullt af fólki að tjá sig um eitthvað sem það hefur ekki hugmynd um eða neitt vit á.

En verður maður ekki að vera með........

var búin að búa til síðu á einhverju x-bloggi eitthvað en var bent á að mbl væri víst málið

prufum þetta allavega

Kveðja Lella


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband